Almennar stjórnmálaumræður (eldhúsdagsumræður) hefjast klukkan tuttugu mínútur í átta í kvöld. Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Röð flokkanna verður þessi í öllum umferðum: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin – grænt framboð, Framsóknarflokkur, Björt framtíð og Píratar.

Fyrir Samfylkinguna tala Árni Páll Árnason, 4. þm. Suðvesturkjördæmis, í fyrstu umferð, í annarri Valgerður Bjarnadóttir, 11. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, og í þeirri þriðju Guðbjartur Hannesson, 5. þm. Norðvesturkjördæmis.

Ræðumenn Sjálfstæðisflokksins eru Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra í fyrstu umferð, Guðlaugur Þór Þórðarson, 7. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri umferð, en í þriðju umferð Unnur Brá Konráðsdóttir, 4. þm. Suðurkjördæmis.

Fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð tala Katrín Jakobsdóttir, 3. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, Svandís Svavarsdóttir, 5. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri en í þriðju umferð Bjarkey Gunnarsdóttir, 9. þm. Norðausturkjördæmis.

Ræðumenn Framsóknarflokksins eru í fyrstu umferð Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra, Sigrún Magnúsdóttir, 7. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í annarri og Frosti Sigurjónsson, 2. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í þriðju umferð.

Fyrir Bjarta framtíð tala í fyrstu umferð Guðmundur Steingrímsson, 7. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri Brynhildur Pétursdóttir, 10. þm. Norðausturkjördæmis, en í þriðju umferð Óttarr Proppé, 11. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður.

Ræðumenn Pírata eru Birgitta Jónsdóttir, 12. þm. Suðvesturkjördæmis, í fyrstu umferð, Helgi Hrafn Gunnarsson, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í annarri en í þriðju umferð Jón Þór Ólafsson, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður.