Það er óhætt að segja að rautt var um að litast í Kauphöllinni í dag en alls lækkuðu 12 félög í viðskiptum dagsins.

Verð á hlutabréfum í Icelandair lækkaði mest eða um 3,45% í 155 milljóna króna viðskiptum. Kvika lækaði næst mest eða um 3,25% i 129 milljóna krona viðskiptum.

Aðeins tvö félög hækkuðu á markaði í dag en það voru Arion og Festi sem hækkuðu um 0,54% og 0,79%.

Hlutabréfavísitala Kauphallarinnar lækkaði um 0,85% og heildarvelta á Aðalmarkaði í dag nam 1 milljarði króna.