Í morgun voru kynntar niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar 2021 og er þetta tuttugasta og þriðja árið sem ánægja íslenskra fyrirtækja er mæld með þessum hætti. Handhafar viðurkenningarinnar í ár eru eldsneytissala Costco, Heimilstæki, Nova, IKEA, Apótekarinn, Krónan og BYKO.

Að þessu sinni eru niðurstöður birtar fyrir 37 fyrirtæki í 13 atvinnugreinum. Einungis er veitt þeim fyrirtækjum sem eru með tölfræðilega marktækt hæstu einkunnina í viðkomandi atvinnugrein, þ.e. þar sem segja má með 95% vissu að viðskiptavinir fyrirtækisins með hæstu einkunnina séu að jafnaði ánægðari en viðskiptavinir fyrirtækisins með næsthæstu einkunnina.

„Costco eldsneyti var með marktækt hæstu einkunn allra fyrirtækja sem mæld voru í Ánægjuvoginni þetta árið og eru viðskiptavinir eldsneytissölu Costco þar af leiðandi þeir ánægðustu á Íslandi. Hins vegar ber að taka fram að Costco er ekki með ánægðustu viðskiptavinina á smásölumarkaði en þar var Costco með þriðju lægstu einkunnina eða 65,5 stig,“ segir í tilkynningu Íslensku ánægjuvogarinnar sem er á vegum Stjórnvísi.

Efstu fyrirtækjum á mörkuðum þar sem ekki var marktækur munur á efsta og næstefsta sæti fengu einnig viðurkenningu fyrir góðan árangur; Penninn Eymundsson var með 75,3 stig á ritfangamarkaði, Sjóvá fékk 68,9 stig á tryggingamarkaði, Landsbankinn var með 67,9 stig á bankamarkaði, Smáralind með 67,8 hjá verslunarmiðstöðum og hjá raforkusölum var Orka náttúrunnar hæst með 65,7 stig.

Prósent (áður Zenter rannsóknir) sá um framkvæmd mælinganna sem fór fram yfir árið 2021. Könnunin var send í tölvupósti á könnunarhóp Prósents. Um 3.000 manna úrtak á hverjum markaði. 200-1.000 svarendur fyrir hvert fyrirtæki. Niðurstöður voru vigtaðar með tilliti til kyns, aldurs og búsetu þýðisins.

Íslenska ánægjuvogin er mælikvarði á ánægju viðskiptavina sem er mæld reglulega yfir árið og gagnast fyrirtækjum sem mælikvarði á þeirra frammistöðu á milli ára og í samanburði við helstu samkeppnisaðila. Þau fyrirtæki sem vinna sinn flokk fá að nota merki Íslensku ánægjuvogarinnar á sínu markaðsefni sem og njóta heiðursins.

Ánægjuvogin samanstendur af eftirfarandi þremur spurningum:

  1. Á heildina litið, hversu ánægður(ur) eða óánægð(ur) ert þú með reynslu þína af [fyrirtæki]?
  2. Hugleiddu allar væntingar þínar til [fyrirtækis] annars vegar og reynslu þína af fyrirtækinu hins vegar. Að hve miklu leyti uppfyllir [fyrirtæki] væntingar þínar?
  3. Núna biðjum við þig um að ímynda þér hið fullkomna [fyrirtæki á viðkomandi markaði]. Hversu nálægt slíku fyrirtæki er [fyrirtæki]?

Ánægjuvogareinkunnin tekur gildi á kvarðanum 0-100, þar sem hærri einkunn gefur til kynna meiri ánægju. Athygli er vakin á siða- og viðmiðunarreglum um notkun á merki Íslensku ánægjuvogarinnar sem finna má hér .

Íslenska ánægjuvogin var afhent á Grand hótel í morgun. Upptaka af fundinum er hér að neðan.