Eldsneytisverð hefur verið lækkað hjá öllum olíufyrirtækjunum nema Skeljungi í dag.

Lítri af 95 oktana bensíni kostar nú 129,4 krónur og lítri af dísilolíu 138,4 krónur.

Vb.is leitaði viðbragða hjá Skeljungi en þar stendur ekki til að lækka eldsneytisverð í dag.

Hjá Orkunni kostar lítri af 95 oktana bensíni nú 129,3 krónur og lítri af dísilolíu 138,3 krónur.