Aðfararnótt þriðjudagsins 8. nóvember 2016 kom upp eldur í fiskvinnslu hlutdeildarfélags HB Granda í Puerto Chacabuco í Síle. Bolfiskvinnsla félagsins eyðilagðist að mestu og aðstaða til vinnslu á eldislaxi gereyðilagðist í eldsvoðanum en engin slys urðu á fólki. Þetta segir í frétt Fiskifrétta . Tryggingaverðmæti eignanna er 12 milljónir USD. Eldsupptök eru ókunn. Frá þessu er greint á vef HB Granda.

Leitað verður til fyrirtækisins Marine Harvest um að taka að sér vinnslu á laxi fyrst um sinn en Marine Harvest rekur slíka vinnslu á svæðinu. Pesquera Friosur lokaði bolfiskvinnslu sem félagið rak í Conception í lok síðasta árs en mun nú setja starfsemi hennar í gang aftur í stað vinnslunnar sem brann í Chacabuco.

Félagið Deris SA sem HB Grandi á 20% hlut í rekur útgerðar- og fiskvinnslufélagið Pesquera Friosur, útgerðarfélagið Pesca Chile og laxeldisfélagið Salmones Friosur.

Pesquera Friosur gerir út tvo ísfisktogara og rekur fiskvinnsluna sem brann í Chacabuco auk fiskvinnslunnar í Conception sem mun a.m.k. tímabundið taka við. Pesca Chile sem er í Punta Arenas rekur 4 frystiskip, tvö línuveiðiskip og tvo togara. Salmones Friosur stundar fiskeldi og hefur slátrað og unnið úr um 15-20.000 tonnum af laxi á ári.

Rekstur útgerðar og fiskvinnslu Pesquera Friosur og Pesca Chile hefur gengið þokkalega undanfarin misseri. Rekstur Salmones Friosur hefur verið brokkgengur en gengið vel undanfarna mánuði.

Hlutur HB Granda í Deris SA er metinn á um 18 milljónir EUR í bókum félagsins 30.6.2016 (um 2,5 milljarðar ÍKR).