Elías Pétursson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Langanesbyggðar, en þetta samþykkti sveitarstjórn Langanesbyggðar á fundi sveitarstjórnar í gær. Þetta kemur fram í frétt á vef Langanesbyggðar.

Ellefu umsækjendur voru um stöðuna. Elías hefur unnið síðustu misseri sem ráðgjafi hjá Mosfellsbæ. Hann er fæddur á Þórshöfn og á ættir sínar að rekja í Skála en er nú búsettur í Mosfellsbæ. Elías er fráskilinn og á þrjá syni. Elías mun hefja störf um miðjan ágúst næstkomandi.