Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu dróst töluvert saman í vikunni en þó ber að geta þess að vikan þar á undan var eins sú óvenjulegasta sem sést hefur á markaðnum lengi, þ.e. með tilliti til veltu.

Þannig nam veltan nú í vikunni 1.479 milljónum króna samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands, og dróst því saman um 71% á milli vikna en í vikunni á undan nam veltan 5.048 milljónum króna og hafði þá aukist um 322% frá vikunni þar á undan. Rétt er að taka fram að meðaltal á viku nemur, það sem af er ári, 1.282 milljónum króna sem sýnir hvað þar síðasta vika var óvenjuleg.   Fjögurra vikna meðalvelta eykst nú aðra vikuna í röð sem má rekja til fyrrnefndra dæma. Þannig nemur fjögurra vikna meðalvelta nú 2.337 milljónum króna og hefur aldrei verið meiri á árinu. Fram að síðustu viku hafði fjögurra vikna meðalvelta mælst hæst tæpar 1.600 milljónir á þessu ári en það var um miðjan maí. Þá hefur fjögurra vikna meðalveltan hækkað um rétt rúman milljarð á fjórum vikum.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur nú hækkað um 92% milli ára en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta lækkað um 81% milli ára.

Tólf vikna meðalvelta hækkar einnig á milli vikna eða um 20 milljónir króna. Þannig nemur 12 vikna meðalvelta nú 1.707 milljónum króna og hefur ekki verið svo tæpa í 12 mánuði. Tólf vikna meðalvelta hefur nú dregist saman um 8% milli ára en hafði á sama tíma í fyrra dregist saman um 73% milli ára.

Til gamans má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði. Hún er í dag 1.238 milljónir króna og lækkar um 5 milljónir á milli vikna. Vegna þeirrar veltu sem getið var um hér í upphafi hækkaði meðalveltan síðustu 12 mánuði í síðustu viku og var það fyrsta hækkunin í 40 vikur. Fyrir ári síðan nam 12 mánaða meðalveltan 2.335 milljónum króna og hefur því dregist saman um 47% á milli ára.

Í þessari viku:

Alls var 50 kaupsamningum þinglýst í vikunni, samanborið við 47 samninga í vikunni áður. Alls hefur 39 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku á þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning lækkar þó verulega á milli vikna og er meira í takt við það sem verið hefur síðustu vikur og mánuði. Þannig nam meðalupphæð á hvern samning í vikunni 29,6 milljónum króna en meðalupphæð á hvern samning frá áramótum er nú 33,4 milljónir króna.