Elín Hjálmsdóttir hefur tekið sæti í stjórn Eimskip Ísland, dótturfélags Eimskipafélags Íslands. Elín, sem er starfsmannastjóri Eimskips, kemur inn í stjórnina í stað Braga Þórs Marinóssonar, fram­kvæmdastjóra alþjóðasviðs Eimskips.

Ásamt Elínu sitja þeir Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskipafélagsins, og Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs, í stjórn félagsins. Breytingin á stjórninni fór fram 30. ágúst síðastliðinn en þess má geta að lög um kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja tóku gildi 1. september.