Elín Þórunn Eiríksdóttir
Elín Þórunn Eiríksdóttir
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Elín Þórunn Eiríksdóttir, hefur gengið til liðs við Sjóvá sem nýr framkvæmdastjóri sölu- og ráðgjafarsviðs.

Elín er viðskiptafræðingur að mennt og hefur undanfarin 5 ár starfað hjá Símanum, lengst af sem framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs. Áður starfaði hún um 9 ára skeið hjá Eimskip, lengst af sem forstöðumaður sölueininga.

Frá því Elín hætti störfum hjá Símanum hefur hún gegnt stjórnarformennsku í Radíómiðun og Staka, hún er varaformaður stjórnar Valitors og situr sem meðstjórnandi í stjórn Símans. Elín hefur því langa stjórnunarreynslu og haldgóða reynslu af þjónustu- og sölumálum.