Elín Málmfríður Magnúsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Wise og tekur hún við af Gunnari Birni Gunnarssyni. Undanfarin ár hefur Elín starfað sem fjármálastjóri Vaka fiskeldiskerfa á Íslandi og samfara því séð um fjármálastjórn í dótturfélögum þess í Noregi, Chile og Skotlandi.

Þar áður kom hún að stofnun M7 ráðgjöf þar sem hún vann sem fjárhagsráðgjafi. Elín bjó með fjölskyldu sinni í Danmörku í tæp 10 ár þar sem hún vann sem viðskiptastjóri (e. business controller) hjá Eurofins NSC A/S. Þar hafði hún ásamt hópi sérfræðinga yfirumsjón með fjármálastjórn fyrirtækja Eurofins í Danmörku og Finnlandi.

Elín er með BSc. gráðu í viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Bifröst og hefur víðtæka reynslu af rekstri fyrirtækja, ráðgjöf og verkefnastjórnun.

Hún er gift Sveini Snorra Magnússyni, sérfræðingi hjá Gagnaveitu Reykjavíkur, og saman eiga þau þrjú börn.

Jóhannes Helgi Guðjónsson forstjóri Wise:

„Það er mikill styrkur fyrir Wise að fá Elínu til liðs við Wise. Hún hefur ekki aðeins gríðarlega reynslu af rekstri fyrirtækja sem fjármálastjóri heldur hefur hún einnig starfað sem ráðgjafi og þekkir því vel til eðli starfseminnar. Wise hefur vaxið hratt með breikkun vöru- og þjónustuframboðs og leggur sem fyrr mikla áherslu á faglega og persónulega þjónustu við fyrirtæki af öllum stærðargráðum.“

Elín Málmfríður:

„Wise er í miklum vexti, heimsmyndin er í sífelldri þróun og við erum í miðri umbyltingu á tækniþróun og sérstaklega það sem snýr að stafrænum lausnum og nýtingu þeirra. Þar ætlum við að vera leiðandi með okkar vörur, aðstoða viðskiptavini okkar til að vera sjálfbærari og grænni og við að taka betri ákvarðanir svo þeir nái hámarks arðsemi og hagræðingu úr sínum rekstri.

Framtíðin er björt hjá Wise og er ég mjög spennt að fá að taka þátt í þessu ævintýri og bætast í hóp öflugra starfsmanna fyrirtækisins.“