Elín M. Stefánsdóttir
Elín M. Stefánsdóttir
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Elín M. Stefánsdóttir bóndi í Fellshlíð hefur tekið við stjórnarformennsku hjá Mjólkursamsölunni og verður jafnframt fyrsta konan til þess að gegna hlutverki stjórnarformanns hjá fyrirtækinu.

Elín og eiginmaður hennar Ævar Hreinsson búa að Fellshlíð í Eyjafjarðarsveit og hafa verið bændur þar síðan 2002. Þau eiga 4 börn. Elín hefur setið í stjórn Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar síðastliðin 6 ár.

Fyrrum stjórnarformaður situr áfram í stjórn

Breytingar urðu nýlega á fulltrúum Auðhumlu í stjórn Mjólkursamsölunnar í kjölfar aðalfundar Auðhumlu, sem er aðaleigandi MS og hefur stjórn MS skipt með sér verkum.

Ágúst Guðjónsson og Þórunn Andrésdóttir eru nýir aðalmenn í stjórn, en Þórunn var áður varamaður. Þau komu í stað Jóhannesar Torfasonar og Jóhönnu Hreinsdóttur, sem tók sæti í varastjórn. Þá var Björgvin R. Gunnarsson kosinn varamaður í stjórn í stað Sæmundar Jóns Jónssonar.

Egill Sigurðsson, sem verið hefur stjórnarformaður frá árinu 2008, mun sitja áfram í stjórn fyrirtækisins, auk þess að sitja í stjórn nýs dótturfélags MS um erlenda starfsemi. Egill er jafnframt formaður stjórnar Auðhumlu.

Þórólfur er varaformaður

Auk Elínar, Ágústs, Egils og Þórunnar, situr Þórólfur Gíslason í stjórn MS sem fulltrúi Kaupfélags Skagfirðinga og er hann varaformaður. Varamenn í stjórn Mjólkursamsölunnar eftir breytinguna eru Ásvaldur Þormóðsson, Björgvin R. Gunnarsson, Jóhanna Hreinsdóttir, Laufey Bjarnadóttir og Sigurjón Rúnar Rafnsson.

Nýr stjórnarformaður MS Elín M. Stefánsdóttir segir að hún hafi mikla ástríðu fyrir því að landbúnaður á Íslandi dafni sem best og að rekstur Mjólkursamsölunnar og framleiðsla mjólkurvara sé grunnstoð kúabúskapar á Íslandi. „Ég vil sjá Mjólkursamsöluna dafna sem best í framtíðinni,“ segir Elín.

„Það eru framundan margar áskoranir fyrir mjólkuriðnaðinn í kringum endurskoðun á búvörusamningum, tollasamninginn við ESB, aukinn innflutning og fleiri þætti, sem geta haft veruleg áhrif á fyrirtækið sem er í eigu okkar kúabænda."

Egill Sigurðsson fráfarandi stjórnarformaður segir að mjólkuriðnaðurinn og Mjólkursamsalan sjálf hafi breyst mikið á undanförnum árum. „Ég er ánægður með þann árangur sem náðst hefur í hagræðingu þar sem framleiðslueiningum og starfsfólki fækkaði á sama tíma og mjólkurframleiðsla jókst um tugi milljóna lítra árlega og var þeim ávinningi skilað til bænda og neytenda,“ segir Egill.

„Þá breyttist fyrirtækið úr því að framleiða nánast eingöngu fyrir innanlandsmarkað yfir í að eiga samstarf við aðila í 17 löndum um bæði beinan vöruflutning en einnig þekkingar- eða viðskiptaútflutning sem verður spennandi að fylgja eftir áfram. Það er mikill metnaður til þess að efla þessi erlendu viðskipti enn frekar á næstu árum."

Um Mjólkursamsöluna:

Mjólkursamsalan er eitt stærsta matvælafyrirtæki landsins en ríflega fjögur hundruð ársverk eru unnin hjá fyrirtækinu af fólki af 22 þjóðernum. Starfstöðvar fyrirtækisins eru fimm hringinn í kringum landið: Egilsstöðum, Búðardal, Akureyri, Selfossi og Reykjavík.

Mjólkursamsalan er í eigu Auðhumlu, samvinnufélags kúabænda (90,1%) og KS (9,9%). Mjólkursamsalan varð til við hagræðingu í mjólkuriðnaðinum og hefur starfað í núverandi mynd frá árinu 2007.