Elín Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri VÍB, eignastýringarþjónustu Íslandsbanka og tekur þar með sæti í framkvæmdastjórn Íslandsbanka, að því er fram kemur í tilkynningu frá bankanum.

Elín er lögfræðingur að mennt cand. jur próf frá Háskóla Íslands og LL.M. gráðu frá Duke háskóla í Bandaríkjunum. Þá hefur hún lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

Elín hefur víðtæka reynslu af fjármálamarkaði. Hún hefur verið stjórnarformaður Tryggingarmiðstöðvarinnar frá því 2012. Hún var forstjóri Bankasýslunnar frá 2009 til 2011. Þá var hún framkvæmdastjóri verðbréfafyrirtækisins Arev frá 2005 til 2009 og lögfræðingur hjá Fjármálaeftirlitinu frá 2001 til 2005. Þar áður starfaði hún m.a. við lagadeild Duke háskóla, hjá Oz hugbúnaðarfyrirtæki og Héraðsdómi Reykjavíkur.

Elín hefur setið stjórnum allnokkurra fyrirtækja auk TM og má þar nefna, Icelandair, Promens, Reginn og Eyrir Invest. Nú rétt í þessu bárust tilkynningar frá Kauphöllinni þess efnis að Elín hafi sagt sig úr stjórnum TM og Icelandair Group frá og með 1. ágúst nk. vegna breytinga á starfsvettvangi sínum.