Elísabet Ósk Guðjónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Payroll ehf., en um er að ræða nýtt fyrirtæki sem sérhæfir sig í öllu sem viðkemur launamálum einstaklinga og fyrirtækja.
Elísabet starfaði sem fjármálastjóri Sóley Organics sem framleiðir íslenskar snyrtivörur. Áður starfaði Elísabet hjá Auði Capital (nú Virðing) og þar áður hjá Landsbankanum – bæði á sviði verðbréfa- og lífeyrismála.
Elísabet er með BSc gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og MSc gráðu í fjármálum fyrirtækja frá sama skóla.