Elísabet Sveinsdóttir
Elísabet Sveinsdóttir
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Elísabet Sveinsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður markaðssviðs Advania.

Elísabet hefur starfað við markaðsmál um árabil – lengst af hjá Íslandsbanka. Þá starfaði hún hjá Icelandair, auk þess sem hún vann um skeið sem fréttamaður á RÚV.

Fram kemur í tilkynningu frá Advania að Elísabet hafi látið til sín taka í ýmis konar sjálfboðastörfum og er meðal annars einn af stofnendum góðgerðafélagsins „Á allra vörum“ og var formaður ÍMARK – félags markaðsfólks árin 2006 til 2009. Elísabet er með MBA-próf frá Háskóla Íslands. Markaðssvið fellur undir fjármála- og rekstrarsvið Advania og vinnur náið með tekjusviðum fyrirtækisins, sem og samskiptasviði.