Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sæmdi ellefu Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. Eftirtaldir aðilar fengu orðu.

1. Alfreð Gíslason handknattleiksþjálfari, Þýskalandi, riddarakross fyrir framlag til íþrótta
2. Ingileif Jónsdóttir prófessor, Reykjavík, riddarakross fyrir kennslu og rannsóknir á sviði ónæmisfræða
3. Ingvar E. Sigurðsson leikari, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar leiklistar
4. Kolbrún Björgólfsdóttir myndlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar myndlistar
5. Magnús Eiríksson tónlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar tónlistar
6. Ólafur B. Thors, fyrrverandi framkvæmdastjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til menningar og þjóðlífs
7. Smári Geirsson framhaldsskólakennari og rithöfundur, Neskaupstað, riddarakross fyrir framlag til sögu og framfara á Austurlandi
8. Soffía Vagnsdóttir skólastjóri, Bolungarvík, riddarakross fyrir framlag til félagsmála og menningar í heimabyggð
9. Stefán Eiríksson lögreglustjóri, Seltjarnarnesi, riddarakross fyrir frumkvæði og forystu á sviði löggæslu
10. Svanfríður Jónasdóttir bæjarstjóri, Dalvík, riddarakross fyrir störf að sveitarstjórnarmálum
11. Unnur Kolbrún Karlsdóttir, formaður líknar- og vinafélagsins Bergmáls, Reykjavík,