Í fyrra sögðust rúm 11% Íslendinga hafa sleppt heimsókn til tannlæknis sökum kostnaðar jafnvel þótt þeir þyrftu á slíkri þjónustu að halda. Þetta hlutfall var 5,6% árið 2008 en hækkaði milli áranna 2008 og 2011. Á vef Hagstofunnar kemur fram að mikill munur var milli tekjuhópa á Íslandi, en 17,7% í tekjulægsta fimmtungi höfðu sleppt tannlæknisheimsókn sökum kostnaðar en 4,8% í þeim tekjuhæsta.

Nýjustu tölur í alþjóðlegum samanburði eru frá árinu 2012 og var Ísland þá í fjórða sæti Evrópuþjóða eftir því hvernig þessari spurningu var svarað. Aðeins Lettland, Portúgal og Rúmenía voru með hærra hlutfall en Ísland.

Þegar spurt var um aðrar læknisheimsóknir kom í ljós að tæp 3,7% Íslendinga höfðu sleppt læknisheimsókn sökum kostnaðar árið 2012 og var Ísland með sjötta hæsta hlutfallið meðal Evrópuþjóða. Lettland, Rúmenía og Grikkland voru þau lönd þar sem fólk sleppti helst læknisheimsókn sökum kostnaðar.

Þá voru Íslendingar í sjötta sæti Evrópuþjóða við mat á eigin heilsufari árið 2012 en 77% Íslendinga töldu sig búa við góða heilsu. Írar, Svisslendingar og Svíar mátu heilsufar sitt best. Í fyrra töldu fleiri íslenskir karlar en konur heilsufar sitt gott eða 79,5% karla á móti 74,1% kvenna.