Í máli sérstaks saksóknara fyrir verðsamráð var framkvæmdastjóri fagsölusviðs hjá Byko sá eini af tólf starfsmönnum byggingavöruverslanna Byko, Húsasmiðjunnar og Úlfsins sem dæmdur var. Hann fékk eins mánaðar skilorðsbundinn dóm til tveggja ára, en hinir ellefu voru sýknaðir. Þessu greinir Vísir fra, en dómur var kveðinn upp í dag.

Hinir ákærðu voru sakaðir um að hafa reynt að koma í veg fyrir að verslanirnar ættu í samkeppni með því að eiga  í verðsamráði. En meint brot áttu að hafa falist í skipulagðri upplýsingagjöf um verð og tilboðskjör sérgreindra grófvörutegunda, sér í lagi bygginga- og timburvara, í símtölum milli starfsmanna fyrirtækjanna til þess að hafa áhrif á verð, afslætti, álagningu og önnur viðskiptakjör innan umræddra fyrirtækja.

Einn starfsmaður hjá Húsasmiðjunni sagði fyrir dómi að símtöl sem hann átti við starfsmann Byko hefðu ekki haft neina þýðingu fyrir sig. Hann sagði að þeir hefðu skipts á verðum en þessi símtöl hefðu ekki haft neina þýðingu fyrir sig því verðin lágu fyrir á heimasíðu Byko og sótti hann þau iðulega þangað. Nokkrir sem komu fyrir og báru vitni í málinu sögðu að þessi upplýsingagjöf væri á pari við ef viðskiptavinur myndi hringja í verslanirnar og biðja um verð á vörum.