Ellefu áhugasamir fjárfestar gáfu sig fram við ítölsk stjórnvöld vegna sölu á hlut ríkisins í flugfélaginu Alitalia en tilboðsfrestur rann út á mánudag. Ríkið hyggst selja 30.1% af eign sinn og yrði því væntanlegum kaupanda skylt að gera yfirtökutilboð í félagið.
Ásamt því að gera tilboð í eign ríkisins þurftu fjárfestar að leggja fram áætlun um viðsnúning á rekstri Alitalia. Tilraunir ríkisvaldsins til þess hafa runnið út í sandinn, ekki síst vegna andstöðu verkalýðsfélaga starfsmanna félagsins.
Meðal þeirra fjárfesta sem hafa lýst yfir áhuga er hópur sem er leiddur af ítalska athafnamanninum Carlo De Benedetti, Texas Pacific Group Europe, fjárfestingarbankaarmi ítalska bankans Unicredito og Terra Firma Investments á Bretlandseyjum.