Ellert Vigfússon, framkvæmdastjóri Icelandic USA & Asia, hefur fært til 13.163.555 hluti í sinni eigu yfir í félagið Norys Capital ltd., en hann er aðaleigandi þess, samkvæmt flöggun hjá Kauphöllinni.

Gengi viðskiptanna er 8,4 og er verðmæti hlutarins, samkvæmt því, 110,6 milljónir króna. Gengi Icelandic Group á var 7,8 við lok markaðar.

Hann á 46.6555.880 hluti í félaginu. Sé miðað við markaðsgengi er verðmæti hlutarins um 392 milljónir króna.