Elmar Hallgríms Hallgrímsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá 365.

Elmar er lektor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands þar sem hann kennir m.a. fjármál, lögfræði, samningatækni, sáttamiðlun, viðskiptasiðfræði og stjórnarhætti fyrirtækja. Elmar hefur einnig undanfarið starfað hjá Arion banka.

Elmar er með LL.M gráðu frá University of Pennsylvania og embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands. Hann hefur lokið meistaranámi í fjármálum fyrirtækja og í viðskiptasiðfræði frá Háskóla Íslands. Þá hefur Elmar einnig lokið prófi í verðbréfasviðskiptum og hefur leyfi til að starfa sem héraðsdómslögmaður.

Elmar hefur víðtæka reynslu af stjórnarsetu og er m.a. stjórnarformaður MBA náms Háskóla Íslands og viðskiptafræðistofnunar Háskóla Íslands. Þá hefur Elmar m.a. setið í stjórn Samkeppniseftirlitsins, LÍN og ýmissa lífeyrissjóða.