Elon Musk, stofnandi Tesla og SpaceX, er orðinn ríkasti maður heims, í krafti ævintýralegrar hækkunar hlutabréfaverðs Tesla sem hækkað hafa um 5,8% það sem af er degi.

Áætlaður auður Musk hefur vaxið um 150 milljarða dollara undanfarið ár samkvæmt auðmannalista Bloomberg , sem segir hann nú hafa tekið fram úr Jeff Bezos, stofnanda Amazon.

Tesla hefur hækkað um 743% undanfarið ár. Með því hefur auður Musk aukist úr um 40 milljörðum dollara í tæplega 190 milljarða dollara. Telsa er meðal fyrirtækja sem búist er við að njóti góðs af valdaskiptunum í Washington og hafa hlutabréf félagsins hækkað töluvert undanfarinn sólarhring.

Musk á 20% hlut í Tesla auk þess að eiga kauprétti að hlutum sem geta skilað honum um 42 milljörðum dollara. Bloomberg bendir á að margir hafi furðað sig á hve mikið bréf Teslu hafa hækkað enda framleiddi félagið ekki nema um hálfa milljón bíla í fyrra, sem er brot af þeim fjölda sem samkeppnisaðilarnir framleiða en er þó orðið margfalt verðmætara en helstu keppinautarnir.

Bloomberg segir Musk þó lítinn áhuga hafa á efnislegum gæðum og eigi fáar veraldlega eignir utan hlutabréfa sinna í Tesla og SpaceX. Musk segir markmiðið með auðsöfnun sinni vera að flýta sem mest fyrir búsetu manna utan jarðarinnar, og hefur sett stefnuna á byggð mannfólks á reikistjörnunni Mars.