einar karl
einar karl
Forsætisráðuneytið hefur auglýst laust til umsóknar embætti ríkislögmanns. Skarphéðinn Þórisson hrl., sem gegnt hefur embættinu frá 1. maí 1999, hefur óskað eftir lausn vegna veikinda. Einar Karl Hallvarðsson hrl., sem hefur verið settur ríkislögmaður frá 1. desember 2010, mun áfram gegna embættinu tímabundið uns skipað hefur verið í það. Á mynd má sjá Einar Karl.

Skipað er í embætti ríkislögmanns til fimm ára. Ríkislögmaður skal fullnægja almennum starfsgengisskilyrðum samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, lagaskilyrðum til skipunar í dómaraembætti við Hæstarétt samkvæmt lögum um dómstóla, og hafa réttindi til málflutnings fyrir Hæstarétti samkvæmt lögum um lögmenn.