Emessís ehf. hefur ákveðið að draga til baka boðaðar verðhækkanir á vörum fyrirtækisins. Verð á öllum vörum Emmessís verður því áfram óbreytt. Fyrirtækið segir í yfirlýsingu að þær hækkanir sem höfðu verið boðaðar hafi verið áformaðar vegna hækkunar á aðföngum og hærri framleiðslukostnaði. Því vaknar upp sú spurning hvort sú ákvörðun að hætta við hækkunina muni hafa áhrif á afkomu fyrirtækisins.

„Við munum leita allra leiða til að hagræða enn frekar. jafnvel þó við höfum gengið ansi langt í því á síðasta ári,“ segir Elín Þórðardóttir, framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Hún segir að stjórn og stjórnendur fyrirtækisins muni leita allra leiða til að hagræða betur. „En við munum hamra á öðrum innlendum birgum til þess að draga hækkanir til baka,“ segir Elín.

Í yfirlýsingu frá Emmessís segir að með ákvörðun um að draga hækkanirnar til baka vilji fyrirtækið leggja sitt af mörkum til að skapa sátt á vinnumarkaði og stuðla að stöðugleika í efnahagslífi þjóðarinnar þrátt fyrir umtalsverða verðhækkun aðfanga og aukinn framleiðslukostnað.

„Það er mat stjórnenda að mikilvægt sé að nýgerðir kjarasamningar standi svo hægt sé að eyða óvissu og halda áfram að styðja við vöxt atvinnulífsins. Veigamikill þáttur í því er að halda verðlagi í skefjum, tryggja kaupmátt almennings og ná niður vaxtastigi í landinu. Það er bæði í þágu launafólks og atvinnurekenda, sem þurfa að búa við mun hærri fjármagnskostnað en þekkist í nágrannalöndum okkar,“ segir í yfirlýsingunni

Þá segir að Emmessís hafi undanfarið ár farið ítarlega yfir rekstur sinn með það að markmiði að hagræða í stað þess að velta kostnaðarhækkunum út í verðlagið. „Þegar erfitt var að ganga lengra vegna frekari hækkana á aðföngum var tilkynnt um 4,5% hækkun á völdum vörum í febrúar næstkomandi. Ákvörðunin byggði á mikilli verðhækkun aðfanga frá erlendum og innlendum birgjum, sem fyrirtækið hefur nú ákveðið að bregðast við með enn meiri hagræðingu,“ segir í yfirlýsingunni.