Íslandsbanki og N1 hafa lokið endurfjármögnun á lánum félagsins, en N1  er eitt stærsta verslunar- og þjónustufyrirtæki landsins. Íslandsbanki veitir félaginu langtímalán ásamt sveigjanlegri skammtímafjármögnun, sem er aðlöguð að rekstri félagins.

Velta N1 á árinu 2012 nam rúmlega 60 milljörðum en eignir félagsins námu tæplega 28 milljörðum króna og eigið fé nam 14,6 milljörðum króna skv. árshlutauppgjöri 30.júní 2013.

N1 gekk í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu um mitt ár 2011. N1 ákvað nýlega að fara í útboð með öll bankaviðskipti sín og þar með undirbúa félagið betur fyrir væntanlega skráningu félagsins í Kauphöll Íslands. Í kjölfarið valdi félagið  að ganga til samninga við Íslandsbanka sem lauk með undirritun samninga nýverið.