N1 Rafmagn hefur ákveðið að endurgreiða þeim viðskiptavinum sem komu til félagsins í gegnum þrautavaraleið stjórnvalda þann mismun sem var á auglýstum taxta og þrautavarataxta frá upphafi.

„N1 Rafmagn kallar eftir því frá stjórnvöldum að reglugerð varðandi þrautavaraleið verði skýrð enn frekar og endurskoðuð sem fyrst með það að markmiði að fleiri neytendur velji sér raforkusala sjálfir með upplýstari og gagnsærri hætti en nú er og mistök sem þessi endurtaki sig ekki,“ segir í fréttatilkynningu félagsins, sem hét áður Íslensk Orkumiðlun.

Félagið tók fyrst við sem sölufyrirtæki til þrautavara 1. maí 2020 en enginn munur var á auglýstum taxta til heimila og þrautavarataxta til heimila fram til mars 2021. Endurgreiðslan á því við um tímabilið 1. mars 2021 til 31. október 2021 og getur heildarupphæð numið allt að 40 milljónum króna. Þegar hefur verið endurgreitt til viðskiptavina fyrir tímabilið 1. nóvember 2021 til 31. desember 2021.

N1 Rafmagn segist hafa leitast eftir að finna sanngjarna niðurstöðu í málið, hratt og örugglega. Félagið leitaði til Orkustofnunar, sem hefur umsjón og eftirlit með þrautavaraleiðinni, um leiðsögn hvað það varðar. Félagið segir að þar sem Orkustofnun hefur ekki enn birt félaginu niðurstöðu sínar eða gefið svör við spurningum sem lúta að stöðu N1 Rafmagns sem orkusali til þrautavara, þykir nauðsynlegt að koma til móts við þrautavaraviðskiptavini félagsins eins fljótt og kostur er með endurgreiðslu á uppgefnu tímabili.

„Um leið er beðist velvirðingar á ofangreindu misræmi í verðlagningu og munu allir viðskiptavinir sem koma í gegnum þrautavaraleið færast á lægsta taxta félagsins hér eftir.

Umrætt fyrirkomulag um sölufyrirtæki til þrautavara tók gildi í desember 2019 með reglugerð um raforkuviðskipti og mælingar. Markmið reglugerðarinnar var að tryggja að auka samkeppni á raforkumarkaði og tryggja að heimili og fyrirtæki væru örugglega í viðskiptum við eitthvað raforkusölufyrirtæki.

Áður fór var neyslu beint sjálfkrafa til raforkusala eftir markaðssvæðum. Í maí 2020 gaf Orkustofnun síðan út leiðbeiningar um val á sölufyrirtæki til þrautavara og er það fyrirtæki tilnefnt sem hefur lægstan heildarkostnað á sex mánaða tímabili. N1 Rafmagn var fyrsta sölufyrirtækið til að sinna hlutverki orkusala til þrautavaraleiðar stjórnvalda.

„Frá byrjun hefur reynst erfitt að átta sig á umfangi og kostnaði sem fylgir því að afla orku fyrir þennan hóp viðskiptavina og því hefur þurft að kaupa dýrari raforku á skammtímamarkaði til að mæta þessari eftirspurn. Í mars 2021 brá félagið á það ráð að hækka þrautavarataxta í samræmi við verð á skammtímamarkaði og túlkun N1 Rafmagns á reglugerð um sölufyrirtæki til þrautavara. N1 Rafmagn harmar að hafa hækkað þrautavarataxtann án þess að leita fyrst annarra leiða til að veita öllum viðskiptavinum sama verð og auglýst er,“ segir í tilkynningu N1 Rafmagns.

Hinrik Örn Bjarnason framkvæmdastjóri N1:

„Frá því að N1 Rafmagn var fyrst valið sölufyrirtæki til þrautavara, hefur meðalverð á skammtímamarkaði hækkað um 75%. Frjáls raforkumarkaður fyrir neytendur er enn að mótast eins og ljóst er af því að íslenskir neytendur skipta síður um raforkufyrirtæki en neytendur í löndum sem við berum okkur saman við. Það er ætlun okkar hjá N1 Rafmagni að keppa á íslenskum raforkumarkaði, neytendum til hagsbóta. Við gerðum mistök, öxlum ábyrgð á þeim og munum læra af þessu máli. Við munum halda ótrauð áfram að bjóða landsmönnum upp á samkeppnishæft raforkuverð og hvetjum jafnframt neytendur til að bera saman verð og velja sér raforkusala sjálfir á þeim grunni.”