N1 stofnaði fasteignafélagið Umtak í ársbyrjun 2007 og seldi í kjölfarið allar fasteignir sínar þangað inn. Kaupþing, nú Arion banki, lánaði fyrir viðskiptunum. Lánið var í erlendum gjaldmiðlum. Samkvæmt nýbirtum ársreikningi Umtaks skuldaði félagið samtals 27,2 milljarða króna í lok árs 2009. Þar munar mestu um að skuldir félagsins jukust um 13 milljarða króna á árinu 2008 einu saman vegna gengisbreytinga.
Virði eigna jókst
Sama ár jókst virði eigna Umtaks líka um 15,5 milljarða króna, þrátt fyrir að engar nýjar eignir hafi bæst í eignarsafn félagsins. Hermann Guðmundsson, framkvæmdarstjóri BMT og forstjóri N1, segir þetta vera vegna endurmats á virði þeirra leigusamninga sem Umtak hefur hönd á. „Samkvæmt lögum um uppgjör fasteignafélaga þá ber að meta virði þeirra leigusamninga sem eign. Þar sem leigusamningarnir eru í erlendri mynt þá hækkar virði þeirra mjög mikið. En við þá hefur verið staðið í einu og öllu. N1 er nú að greiða rúmlega tvöfalda þá leigu sem lagt var af stað með.“
N1, sem er langstærsti viðskiptavinur Umtaks, er aðaleigandi Umtaks. Aðrir eigendur eru félög í eigu bræðranna Einars og Benedikts Sveinssonar, sem á móti eru eigendur N1. Því er þorri leigunnar sem Umtak fær greidd af öðru félagi innan BNT-samstæðunnar. Leigugjald N1 hefur rúmlega tvöfaldast frá bankahruni.
-Nánar í Viðskiptablaðinu