Í gær kynnti hópur forsvarsmanna fyrirtækja á Norðurlöndum sameiginlega áætlun sína um að hraða framkvæmd markmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Á 70. þingi Norðurlandaráðs í Ósló í þessari viku kynntu fulltrúar hópsins sameiginleg áform hans fyrir forsætisráðherra Noregs, Ernu Solberg. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Íslandsbanka.

Í hópnum eru forsvarsmenn Equinor, Hydro, GSMA, Íslandsbanka, Nokia, SAS, Swedbank, Telenor Group, Telia Company, Vestas og Yara. Forsvarsmennirnir hafa sameinast um að tala einum rómi um nauðsyn þess að endurnýja þau viðskiptalíkön sem munu knýja umbreytinguna yfir í hagkerfi 21. aldar í samræmi við siðferðileg, félagsleg og umhverfisleg forgangsmál okkar tíma.

Með þessari áætlun skapast einnig vettvangur fyrir forsætisráðherra Norðurlanda til að ráðgast beint við forsvarsmennina um það hvernig beri að færast frá sjálfbærni sem miðast við að framfylgja reglum, í átt til markmiðsdrifinna fyrirtækja. Lykiltakmark er að kanna leiðir til að hafa meiri áhrif með samvinnu.

Sameiginlegt bréf til forsætisráðherra Norðurlanda

Í júní 2018, þegar þessi áætlun var enn á frumstigi, sendu forsvarsmennirnir sameiginlegt bréf til forsætisráðherra Norðurlanda þar sem þeir kynntu áform sín. Það leiddi til fundarins í dag með Ernu Solberg forsætisráðherra á 70. þingi Norðurlandaráðs þar sem forsvarsmennirnir kynntu sameiginleg áform sín samkvæmt áætluninni og uppfært sameiginlegt bréf. Hópurinn ræddi einnig mikilvægi heimsviðskipta og samstarf hins opinbera og einkaaðila sem bráðnauðsynlegar forsendur þess að markmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun verði náð.

„Við erum stolt af því að vinna með þessum hópi að heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og nýta slagkraft fyrirtækja á Norðurlöndunum sem standa framarlega í heiminum þegar kemur að samfélagsábyrgð" er haft eftir Birnu Einarsdóttur, bankastjóra Íslandsbanka, í tilkynningunni.

„Við í Íslandsbanka höfum um langt skeið lagt mikla áherslu á jafnréttismál, innan sem utan bankans, sem er heimsmarkmið númer fimm. Við finnum að það er horft mikið til árangursins sem náðst hefur á Íslandi í jafnréttismálum og við munum halda þeirri umræðu áfram á lofti.“