Gert er ráð fyrir að fjárhagsleg endurskipulagning á Icelandair klárist fyrir lok janúar 2011.  Áður var gert ráð fyrir að öll formsatriði lokasamninga yrðu frágengin í dag en nú er hinsvegar ljóst að það muni taka lengri tíma að ganga frá þeim.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair.

„Þann 21. október sl. tilkynnti Icelandair Group hf. (félagið) að lokasamningar vegna fjárhagslegrar endurskipulagningar hefðu verið undirritaðar þann dag. Einn þáttur endurskipulagningarinnar var sala á tilteknum eignum sem ekki eru hluti af kjarnastarfsemi félagsins. Í tilkynningunni kom fram að hefðbundnir fyrirvarar um og frágang formsatriða í tengslum við söluna væru í kaupsamningum vegna þeirra eigna, svo sem samþykki opinberra aðila, eftir því sem við á. Gert var ráð fyrir að öll þau formsatriði yrðu frágengin í dag, 15. desember. Nú er hinsvegar ljóst að það mun taka lengri tíma og er nú gert ráð fyrir að það klárist fyrir lok janúar 2011.“