Greiningardeild Landsbankans gerir ráð fyrir batnandi afkomu á öðrum fjórðungi hjá Icelandic Group eftir tveggja ára endurskipulagningu.

"Þá má búast við frekari breytingu til batnaðar á seinni helmingi ársins auk þess sem við reiknum með að félagið innleysi töluverðan hagnað við sölu á 15,8% hlut sinn í kanadíska félaginu Fishery Product International á þessu ári. Við spáum 382,2 milljóna evru sölu Icelandic Group á fjórðungnum og að hagnaður fjórðungsins verði 5,8 milljónir evra," segir Greiningardeildin.