Síðan 19. mars hefur framkvæmdastjórn Straums fjárfestingabanka fundað reglulega með stærstu kröfuhöfum félagsins og lagt fram áætlun um endurskipulagningu Straums.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Straumi en þann 19. mars s.l. veitti Héraðsdómur Reykjavíkur Straumi heimild til greiðslustöðvunar. Greiðslustöðvunin gerir Straumi mögulegt að endurskipuleggja rekstur félagsins í samvinnu við kröfuhafa þess.

Í tilkynningunni kemur fram að í framhaldi af þessum fundum hafa kröfuhafar félagsins samþykkt að koma að þessari endurskipulagningu. Sú vinna felur m.a. í sér að láta framkvæma áreiðanleikakönnun á eignum og skuldum félagsins, taka ákvörðun um rekstrarform fyrirtækisins og afstöðu til lögfræðilegra álitamála varðandi það.

Þá kemur fram að stærri kröfuhafar, bæði innlendir og erlendir, eru um þessar mundir að mynda fulltrúanefnd kröfuhafa. Þessi nefnd, ásamt framkvæmdastjórn Straums og skilanefnd bankans, mun leiða endurskipulagningu Straums.

„Eftir að endurskipulagningarvinnu verður lokið mun félagið hafa það að megin markmiði að stýra eignum sínum og hámarka virði þeirra. Þannig er ætlunin að vernda hagsmuni lánardrottna og annarra er hagsmuna eiga að gæta. Ætlunin er að þessari vinnu verði lokið áður en greiðslustöðvunartímabil lýkur,“ segir í tilkynningu Straums.