Samkomulag hefur tekist við Landsbankann um fjárhagslega endurskipulagningu Olís og tengdra félaga. Samkomulagið felur í sér að Landsbankinn leiðréttir og niðurfærir hluta af lánum félaganna meðal annars í samræmi við þegar kunnar niðurstöðu dómsmála um ólögleg gengistryggð lán og að eftirstandandi lán félagsins eru endurskipulögð. Samkomulagið er endanlegt, þótt ekki liggi fyrir dómsniðurstaða, um allar tegundir gengistryggðra lána til félaganna, að því er segir í tilkynningu.

Þá kemur fram í tilkynningunni að ekki liggi fyrir á þessari stundu hve stór hluti niðurfærslunnar er vegna leiðréttinga gengistryggðra lána og hve mikið bankinn þarf að gefa eftir af skuldum.

Í samkomulaginu felst jafnframt að núverandi hluthafar, þeir Einar Benediktsson forstjóri og Gísli Baldur Garðasson lögmaður afli félaginu viðbótar hlutafjár. Sá hluti samkomulagsins mun þegar að fullu fjármagnaður. Hlutafjáraukningin er þó háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Ekki mun liggja fyrir hvernig hluthafahópurinn verður samansettur þegar upp verður staðið.