Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur skipað starfshóp sem falið er að endurskoða lög um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Þetta kemur fram í frétt frá ráðuneytinu . Hópnum er einnig ætlað að endurskoða lög um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi auk ákvæða annarra laga um fjármálamarkaði eða fjármálafyrirtæki, tengist þau eftirliti með markaðnum.

Markmiðið með starfi hópsins er að hlutverk, staða og verkefni Fjármálaeftirlitsins verði sett fram með skýrari hætti í lögum en nú er líkt og kveðið er á um í fjármálaáætlun fyrir 2018-2022.

Starfshópnum er meðal annars falið að skoða sérstaklega niðurstöður sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins frá í vor. Í niðurstöðum AGS var fjallað um nauðsyn þess að efla eftirlit á fjármálamarkaði hér á landi og að skipulag eftirlits markaðarins yrði tekið gagngerrar endurskoðunar.

Starfshópnum er falið að vinna drög að lagafrumvarpi, ásamt skilagrein, og leggja fyrir ráðherra eigi síðar en 15. desember næstkomandi.

Starfshópinn skipa eftirtaldir:

  • Jóhannes Karl Sveinsson hrl., formaður,
  • Guðbjörg Eva Baldursdóttir, lögfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneyti,
  • Haraldur Steinþórsson, lögfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneyti,
  • Leifur Arnkell Skarphéðinsson, lögfræðingur í fjármál- og efnahagsráðuneyti,
  • Tinna Finnbogadóttir, hagfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneyti.