Forsætisráðherra hefur ákveðið að skipa nefnd sem falið er að skoða aðferðarfræði við útreikning vísitölu neysluverðs út frá alþjóðlegum samanburði. Frá þessu er greint í frétt á vef Stjórnarráðsins og jafnframt kemur fram að Benedikt Árnason verði formaður nefndarinnar.

„Verkefni nefndarinnar er að skoða aðferðafræði við útreikning vísitölu neysluverðs út frá alþjóðlegum samanburði og leita álits erlendra sérfræðinga. Meðal annars verði aðferðafræði við húsnæðislið vísitölunnar tekin til athugunar auk svokallaðs vísitölubjaga," segir í fréttinni.

Nefndin er þannig skipuð:

  • Benedikt Árnason, forsætisráðuneyti, formaður
  • Dagný Ósk Aradóttir, tilnefnd af BSRB
  • Georg Brynjarsson, tilnefndur af BHM
  • Hannes G. Sigurðsson, tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins
  • Heiðrún Erika Guðmundsdóttir, tilnefnd af Hagstofu Íslands
  • Henný Hinz, tilnefnd af Alþýðusambandi Íslands
  • Karen Á. Vignisdóttir, tilnefnd af Seðlabanka Íslands
  • Oddur Jakobsson, tilnefndur af Kennarasambandi Íslands
  • Sigurður Páll Ólafsson, tilnefndur af fjármála- og efnahagsráðuneytinu
  • Sigurður Á. Snævarr, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

Nefndin skal ljúka störfum fyrir lok júní 2020.