Þórarinn Pétursson, aðalhagfræðingur, Seðlabankans segist eiga von á að endurskoðun þjóðhagsreikninga Hagstofunnar fyrir síðasta ár muni benda til þess að VLF hafi verið hærri á síðasta ári en tölur sem nýlega voru birtar gefa til kynna.

Hann segir greiningu Seðlabankans á tölunum birtast í næstu Peningamálum sem koma út 20. apríl.