Embætti sérstaks saksóknara gekk frá starfslokasamningi við Evu Joly fyrr í dag og tekur hann strax gildi.

Þetta er meðal þess sem kom fram á blaðamannafundi embættis sérstaks saksóknara í dag.

Þar sagði Ólafur Þ. Hauksson, sérstakur saksóknari, að starfslok gildi frá deginum í dag og ekki sé um að ræða greiðslur á starfslokatíma. Eva Joly hafi einungis sett fram reikninga fyrir þeim kostnaði við dvöl hennar hérlendis.