Vinnumálastofnun bárust engar hópuppsagnir í maí. Þetta er þriðji mánuðurinn í röð sem engar slíkar tilkynningar berast. Í febrúar barst ein tilkynning fyrir fyrirtæki í byggingariðnaði þegar 21 manni var sagt upp störfum.

Ástæður uppsagnarinnar í febrúar voru sagðar vera endurskipulagning og var gert ráð fyrir því að endurráða sem felsta þegar verkefnastaðan batnaði.

Engar hópuppsagnir voru síðan í janúar.

Til samanburðar bárust 23 tilkynningar um hópuppsagnir í fyrra og var 752 manns þá sagt upp. Á fyrstu fimm mánuðum síðasta árs var 377 manns sagt upp.