© Aðsend mynd (AÐSEND)

Engilbert Hafsteinsson hefur verið ráðinn sem sölustjóri hliðartekna WOW air.

Fram kemur í tilkynningu að Engilbert hefur unnið síðastliðin átta ár hjá D3, dótturfyrirtæki Senu, fyrst sem sölu- og markaðsstjóri og síðstliðin fimm ár sem framkvæmdarstjóri. Í starfi sínu hjá D3 hefur Engilbert leitt uppbyggingu á nokkrum stærri vefþjónustum landsins, má þar nefna Tónlist.is, eBækur.is og Vísir.is.