Í dag verða allir titlarnir á myndbandaleigunni Spretturinn til sölu og er þá engin myndbandaleiga í bænum. Spretturinn hefur hingað til verið myndbandaleiga og pizzastaður. Þetta kemur fram á vefsíðu Vikudags . Helgi Sigurðsson hefur rekið Sprettinn í 30 ár og hóf hann rekstur 8. nóvember árið 1984.

Helgi segir í samtali við Vikudag að blendnar tilfinningar fylgja því að loka leigunni en að það hafi verið óhjákvæmilegt vegna minnkandi eftirspurnar. Áfram mun hann þá reka pizzustaðinn.