Jóhann Jónsson, sem rekur Ostabúðina við Skólavörðustíg, segir að því miður taki hann ekki að sér vinnu við að gera að rjúpum og vinna úr þeim mismunandi rétti eins og hann gerir við gæsir.

„Öll viðskipti með rjúpur eru bönnuð samkvæmt lögum og ég er hræddur um að undir það bann falli slík vinna. Um leið og fyrirtækið mitt er komið inn í þetta, jafnvel þótt aðeins sé um að ræða vinnu við rjúpur viðkomandi viðskiptavina minna, þá er um óheimil viðskipti að ræða. Því miður.“