Uppgreiðslugjöld á íbúðalánum verða afnumin um óákveðinn tíma hjá Nýja Kaupþingi frá og með fyrsta júlí. Fram að þessu hefur uppgreiðslugjald verið 2% af fjárhæð innborgunar. Í tilkynningu segir að bankinn vill með þessu koma til móts við þá viðskiptavini sem vilja greiða hraðar niður húsnæðisskuldir sínar.

Bankinn hefur enn fremur bætt þjónustu sína í netbankanum þannig að nú geta viðskiptavinir sjálfir greitt inná höfuðstól allra lána í netbankanum án milligöngu þjónustufulltrúa. Þetta einfaldar fólki að greiða inná lánin sín.

Finnur Sveinbjörnsson bankastjóri Nýja Kaupþings segir í tilkynningu: ,,Í flestum tilvikum er hagstætt að greiða niður vaxtaberandi skuldir. Það að afnema uppgreiðslugjaldið og gera fólki kleift að greiða inná lán sín í netbankanum auðveldar viðskiptavinum að greiða hraðar niður lán sín."