„Þetta eu mistök. Það er engin lagersala hjá okkur,“ segir Karl S. Óskarsson, sölustjóri BMW og Land Rover hjá BL. Í Fréttablaðinu í dag er hálfsíðuauglýsing frá BL þar sem segir að lagersala sé í gang í Ármúlanum í Reykjavík og mynd af Land Rover Discovery 4. Bíllinn kostar frá rétt tæpum 11 milljónum króna.

Það sem reyndar stingur í augu er að útsalan er á 2. hæð í húsinu í Ármúlanum.

Karl telur að þarna hafi farið saman auglýsing frá BL og fataverslun. Lesendur hafi áttað sig á því.

„En þetta hefur vakið mikla athygli,“ bætir hann við.

Hér má sjá auglýsinguna eins og hún birtist í blaðinu í dag.