Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar Alþingis, segir hallalaus fjárlög enn raunhæft markmið og ekki verði gefinn neinn afsláttur af því, þrátt fyrir að nokkrar ríkisstofnanir hafi farið mikið fram úr gjaldaheimildum sínum á fyrri hluta árs.
Vigdís segir í samtali við Fréttablaðið í dag að ýmis atriði komi á óvart í nýrri skýrslu um fjárreiður ríkissjóðs fyrir fyrstu sex mánuði ársins. Það séu jafnframt mikil vonbrigði hvað stofnanir eru að keyra mikið fram úr heimildum sínum, en um tíu stofnanir fóru rúmlega 100 milljónir króna fram yfir heimild.
Boðað hefur verið til fundar í fjárlaganefnd í næstu viku þar sem farið verður yfir stöðuna og þau ráðuneyti kölluð til sem mest hafa farið fram úr fjárheimildum. Vigdís segist þó ekki fella neina dóma enn því nóg sé eftir af árinu. Stofnanir geti náð að laga rekstur sinn á þeim tíma sem eftir er.