Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða hefur brugðið á það ráð að hætta við ráðstefnu sem átti að halda þann 15. október næstkomandi á Patreksfirði undir yfirskriftinni Sjávarútvegur – Lífæð Vestfjarða. Hefur ráðstefnunni verið frestað um óákveðinn tíma.   Samkvæmt frétt frá Atvinnuþróunarfélaginu valda dræmar skráningar og forföll þessari frestun. Vonir standa þó til þess að  hægt verði að halda ráðstefnuna eins fljótt og kostur er.