Fundi strandríkja um stjórnun makrílveiða sem staðið hefur yfir í vikunni í London lauk í dag án þess að samkomulag næðist um skiptingu heildarafla.

Á fundinum lögðu Íslendingar til að öll strandríkin legðu fram nýjar tillögur um skiptingu á heildarafla. Þegar þau voru ekki tilbúin til þess og ljóst að ekki næðist samkomulag um skiptingu makrílkvótans lagði Ísland til, sem bráðabirgðaráðstöfun, að heildarafli yrði ákveðinn 542.000 tonn í samræmi við ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES).

Fram kemur í tilkynningu frá atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu, að ekki hafi reynst hljómgrunnur á meðal strandríkjanna um slíka bráðabirgðaráðstöfun.

Þá segir í tilkynningunni að á fundinum var samstaða um nauðsyn þess að efla vísindalegan grunn stofnmats og ráðgjafar um makrílveiðar og var ákveðið að senda beiðni um slíkt til ICES. Sömuleiðis var ákveðið að efla samstarf um eftirlit með uppsjávarveiðum í Norðaustur Atlantshafi.