Persónuvernd hefur ákveðið að gera ekki athugasemdir við eftirlit 365 með ólöglegu niðurhali á íslensku sjónvarpsefni að svo stöddu. Ekki var unnið með upplýsingarnar eins og gefið var í skyn í fréttatilkynningu sem að fyrirtækið sendi frá sér í fyrra og enginn hefur verið kærður til lögreglu fyrir ólöglegt niðurhal að því er kemur fram í frétt Ríkisútvarpsins

Í niðurstöðu frumkvæðisathugunar Persónuverndar kom fram að í fréttatilkynningu sem að 365 sendi frá sér í nóvember hafi bent til þess að 365 miðlar stundaði umfangsmikið og kerfisbundið sjálfvirkt eftirlit. Í fréttatilkynningunni sagði meðal annars að 365 hafi kært menn fyrir að dreifa ólöglegu höfundarréttarvörðu efni og að fyrirtækið fylgist grannt með IP-tölum þeirra sem hlaði niður íslensku sjónvarpsefni inn á ólöglegar síður og dreifiveitur. Við rannsókn málsins hefur hins vegar komið í ljós að svo er ekki.