Lárus Ásgeirsson
Lárus Ásgeirsson
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Lárus Ásgeirsson, fostjóri Sjóvár hefur ákveðið að láta af störfum hjá félaginu. Hann lætur strax af störfum og Ólafur Njáll Siguðrsson, framkvæmdarstjóri fjármálasviðs, er staðgengill forstjóra þar til nýr forstjóri verður ráðinn.

Enginn hefur verið ráðinn í starf forstjóra samkvæmt Ernu Gísladóttur, stjórnarformanns Sjóvár. Ekkert ferli er komið að stað um hvernig ráðningu skal háttað, hvort starfið verði auglýst eða hvort Sjóvá hafi hugsanlega arftaka í sigtinu. Fundir um starfslokin og ferli um ráðningu hefst á næstu dögum.