Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefur framlengt til 12. janúar umsóknarfrest um embætti sérstaks saksóknara. Fyrri umsóknarfresti um embætti sérstaks saksóknara lauk 29. desember og sótti enginn um starfið.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu.

Ráðuneytið hefur því framlengt umsóknarfrestinn til 12. janúar.  Saksóknarinn mun veita forstöðu rannsóknar- og saksóknaraembætti samkvæmt lögum sem samþykkt voru á Alþingi 10. desember 2008.

Dóms- og kirkjumálaráðherra skipar í embættið frá og með 1. febrúar 2009, eða svo fljótt sem verða má.