Kaupendur jólagjafa í vöruhúsi Costco í Kauptúni í Garðabæ geta ekki beðið um að fá skiptimiða á gjöfina ef þiggjandi hennar hefði áhuga á að skipta henni út að því er Fréttablaðið greinir frá.

Þess í stað þarf þiggjandi gjafarinnar að fá frá gefandanum kassakvittun, kennitölu og helst meðlimanúmer hans í versluninni. Auk þess eru gjafirnar endurgreiddar til þess sem keypti þær, til að mynda ef greitt er með kreditkorti fer fjárhæðin aftur inn á kreditkort viðkomandi kaupanda. Í þeim tilfellum geta því einungis kaupendurnir sjálfir skilað gjöfunum.