Japanski bílaframleiðandinn Toyota íhugar nú að hætta keppni í Formúlu 1 kappakstrinum í þeim tilgangi að spara við sig rekstrarkostnað.
Frá þessu er greint á vef Financial Times (FT) en bæði Honda og BMW hafa þegar tilkynnt að þau verði ekki með í Formúlu 1 á næsta ári af sömu ástæðum.
FT greinir frá því að forstjóri Toyota, Akio Toyoda muni tilkynna um ákvörðun félagsins í dag en þrátt fyrir að hafa varið um mestu fjármagni allra þátttakenda hefur Toyota aldrei unnið keppni í formúlunni í þau átta ár sem félagið hefur tekið þátt.
Þrátt fyrir að hafa dregið verulega saman seglin á miðju keppnistímabili, sem lauk síðustu helgi, varði Toyota einna mestu fjármagni allra þátttakenda yfir tímabilið. Orðrómur hefur verið á lofti um að Toyota myndi hætta þátttöku eftir þetta keppnistímabil en árið í ár er eitt erfiðasta rekstrarár félagsins í tæp 60 ár.
Brotthvarf Toyota mun enn auka á vandræði Formúlu 1 kappakstursins en síðustu 2-3 árin hefur keppnin verið þekkt fyrir margt annað en kappakstur, s.s. kynlífshneyksli stjórnarmeðlima, deilur á milli bílaframleiðanda annars vegar og deilur á milli bílaframleiðanda og stjórnar hins vegar. Undir það síðasta hafa margir styrktaraðilar hætt að styrkja keppnina og nú bætist við að bílaframleiðendur hafa nokkrir ákveðið að hætta keppni.
Við þetta bætist að í upphafi vikunnar tilkynnti dekkjaframleiðandinn Bridgestone, sem verið hefur helst dekkjaframleiðandi Formúlu 1 þáttakenda, að félagið myndi ekki taka þátt á næsta ári.
Við þetta má þó bæta að það er ekki bara í Formúlu 1 sem framleiðendur vilja spara við sig með því að hætta þátttöku. Nú þegar hafa Subaru, Mitsubishi og Suzuki tilkynnt að félögin muni ekki vera með í heimsmeistarakeppninni í rallý á næsta ári og þá hefur bifhjólaframleiðandinn Kawasaki dregið sig út úr MotoGP bifhjólakeppninni.