Icelandair flutti um 271 þúsund farþega í ágúst sl., sem er 9% fjölgun á milli ára í ágústmánuði. Þetta er jafnframt mesti fjöldi farþega sem félagið hefur flutt á ágústmánuði frá upphafi eins og fram kemur í mánaðarlegum flutningstölum frá Icelandair Group.

Framboð félagsins í mánuðinum á flugsætum jókst um 12% á milli ára. Sætanýtingin minnkaði eilítið á milli ára eða um 0,45 og var 84,9%. Sætanýtingin hefur þó aukist um 2% á milli ára það sem af er þessu ári.

Icelandair hefur nú flutt rúmlega 1,4 milljón farþega það sem af er ári sem er 14% fjölgun á milli ára. Þá hefur framboð félagsins aukist um 13% á milli ára, þannig að farþegafjöldinn hefur aukist umfram framboð.

Heildarfjöldi farþega hjá Icelandair í fyrra nam tæplega 1,75 milljón farþega, samanborið við tæplega 1,5 milljón farþega árið 2010 og tæplega 1,3 milljón farþega árið 2009. Farþegafjöldi félagsins jókst þannig um 18% á milli ára  fyrra.

Í tilkynningu til Kauphallar kemur fram að farþegum fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum eða um 19% og voru þeir um helmingur farþega félagsins.

Færri farþegar hjá Flugfélagi Íslands

Farþegum Flugfélags Íslands, sem jafnframt er í eigu Icelandair Group, fækkaði um 3% á milli ára í ágúst þegar félagið flutti tæplega 37 þúsund farþega. Framboð félagsins jókst um 10% á milli ára í ágúst en sætanýtingin dróst saman um tæp 5% og nam aðeins 69,3%.

Farþegafjöldi Flugfélags Íslands stendur nokkurn veginn í stað á milli ára það sem af er þessu ári en framboð félagsins hefur þó aukist um 3%.

Nýting flugflota sem nýttur er til útleigu en er í eigu Icelandair Group jókst um 7,4% á milli ára í ágúst en hefur dregist saman um 1% á milli ára það sem af er þessu ári. Hér er átt við vélar í eigu samstæðunnar, meðal annars vélar sem leigðar eru út á vegum Lofteidir Icelandic. Seldum blokktímum hefur þó fækkað um 10% á milli ára það sem af er þessu ári en það má að hluta til rekja til þess að fraktvélar í leiguflugsverkefnum eru einni færri en í fyrra.

Fraktflug á vegum Icelandair Cargo jókst um 2% á milli ára í ágúst og hefur aukist um 19% á milli ára það sem af er þessu ári. Þá hefur framboðið af fraktflugi aukist um 7% á milli ára það sem af er ári.

Nýting hótelherbergja í eigu samstæðunnar jókst um 5,8% á milli ára í ágúst og hefur þá aukist um rúm 4% það sem af er ári. Á sama tíma hefur framboðið af hótelrými aukist um 13% það sem af er ári. Seldum gistinóttum fjölgarði um 12% á milli ára í ágúst og hefur fjölgað um 20% það sem af er ári.